Hætt hætt hætt....
Nýja síðan mín er hér www.123.is/sandrah endilega tékka á því. Ennnn síðan er læst þannig að ef ykkur langar að halda áfram að fylgjast með mér þá bara sendið mér póst á sandrah3006@gmail.com
Ok ekki hika við það ég segi örugglega já en kannski nei!!!
Takk fyrir að fylgjast með mér hér...
Jájá ég veit ég veit
Ég sit hérna uppi rúmi og er að horfa á Opruh. Hún er með fullt af pæjum sem eru hver annari flottari eða allavega fötin sem þær eru að sýna. Ohhh ég þoli ekki að horfa á svona og vita það að ég er ekki pæja. Þegar ég verð orðin mjó sem verður á þessu ári ef þið voruð búin að gleyma því þá skal ég sko ganga í drögtum og kjólum ALLA daga!!!!
Ég fór með prinsessurnar mínar í klippingu í gær, Tinna var svo krúttleg hún þorði ekki að hreyfa sig og skildi ekkert hvað var verið að gera við hana. En Birta er nú að verða nokkuð vön og var bara ægilega ánægð með sig. En svooo var komið að því að klippa toppinn og ég sem er alltaf svo veik fyrir því þegar hún var með topp þrátt fyrir að við séum búnar að eyða núna 1 og hálfu ári í að safna honum sagði bara jájá við skulum bara klippa á hana topp. Birta var líka búin að segja í bílnum á leiðinni þegar ég spurði hana að hún væri alveg til í topp. En omg þetta geri ég ALDREI aftur. Þvílík sorg sko. Hún grét og grét og var sko ekki glöð með þetta. Segist bara vilja fá síða toppinn sinn aftur og nennir sko ekki að bíða á meðan þetta vex og ég veit ekki hvað og hvað. Hún var svo reyndar farin að sætta sig við þetta í gærkvöldi en var svo aftur eitthvað leið í morgun eins og hún segir!!
En vá hvað tíminn flýgur áfram þetta er ekkert eðlilegt. Febrúar bara farinn á no time þrátt fyrir aukadag og bara kominn mars og ekki nóg með það heldur er kominn 7. mars, halló tími stoppa kannski bara smá. Mánuður síðan Birta varð 5 ára og hún er bara ALVEG að verða 6 ára segir hún allavega. En það verður komið sumar áður en við vitum af og svo aftur vetur og jólin og bara já ég veit ekki lengur hvað... Mér líst ekkert á þetta.
En jæja Glæstar eru að byrja best að hætta þessu. Enda þetta blogg mitt á uppáhaldsmyndinni minni af elsku afa Árna sem dó 19. febrúar

Ég sakna þín elsku besti afi
Stjörnuspá
Þetta er stjörnuspáin mín á mbl.is í dag. Mér finnst hún töff. Ég held að það sé mikið til í þessu!!! Hvað segiði annars á ég að blogga eða?? Ég held reyndar að það lesi enginn þetta frábæra blogg mitt lengur. Enda ekki skrýtið þar sem ég er ekki sú duglegasta. Ég geng samt alveg með bloggin í hausnum í marga daga og er búin að semja og semja svo þegar ég loksins hef mig í þetta þá man ég náttúrulega ekki neitt.
En núna er ég bara þreytt og nenni varla að blogga. Undanfarin vika hefur snúist um afmæli og vinnu. Helmingurinn af fjölskyldunni búinn að eiga afmæli. Stóra stelpan mín orðin 5 ára og kallinn orðinn 25 ára þannig að það voru haldnar nokkrar afmælisveislur til að fagna svona stóráföngum. Síðan er ég bara búin að vinna og vinna og vinna þessa viku líka, bæði röðuðust mínar vaktir svona þétt með 3 næturvöktum á 6 dögum og svo tók ég eina og hálfa aukavakt líka. Ég ætla nú ekki að kvarta þar sem meirihluti fólks vinnur bara sína vinnuviku og sjálfsagt meira en ég hef gert en ætli ég sé ekki bara að verða svona góðu vön í minni litlu vinnu að ég "þoli" bara ekkert svona mikla vinnu!!!
Æi jæja ég nenni ekki meira í bili
Kiss kiss
Bloggi bloggi bloggi
Á sunnudaginn sótti Steinunn, jájá bara endalaust af Steinunnum
Síðan hef ég nú brasað hitt og þetta, eitthvað minna fréttnæmt. Fór reyndar á námskeið um helgina um hvernig ég á nú að fara með peningana mína. Skemmtilegt námskeið þó að ég hafi kannski ekkert lært allt of mikið því að auðvitað á ég bókina eftir þennan mann, eins og allar aðrar svona bækur sem gætu kennt manni eitthvað um lífið.
Jæja ég nenni ekki að blogga meira í bili. Ég get búið til heilu bloggin í huganum á kvöldi og mjög oft þegar ég er að sofna, en svo þegar ég er að blogga man ég ekki neitt... Alveg sko!!
Kiss kiss
Sandra
Kertin mín...

Sjáið þessi 4 kerti mín, þau brenna ekkert voðalega jafnt myndi ég segja, samt hefur alltaf verið kveikt á þeim öllum í einu í nákvæmlega jafn langan tíma. Skrýtið!! En ok ég skal viðurkenna að þau eru ekki öll eins, 2 eru keypt í IKEA og 2 eru keypt í Nettó, já ok það skýrir margt hugsið þið kannski... En nei ekki alveg. Kertin í miðjunni það eru kertin úr IKEA, í upphafi voru þær hærri og mjórri en kertin á endunum þau eru úr Nettó, þau voru þá væntanlega lægri og feitari.
Áramótaheitið mitt um að fara snemma að sofa er búið að ganga hrikalega vel undanfarin kvöld þangað til NÚNA. Ohhh ég er svo svekkt, ég dreif mig inn í rúm rétt fyrir 12 því að það er takmarkið að vera sofnuð þá en nei nei þegar ég var búin að liggja í hálftíma akkúrat EKKERT þreytt nennti ég þessu ekki lengur og fór bara fram aftur...
En jæja ég verð þá bara að gera e-ð viturlegt á meðan...
Góða nótt þegar ég loksins sofna
Stjörnuspá
Ég hef alltaf svolítið gaman af því að lesa stjörnuspár þó að ég kannski trúi takmarkað af því sem þær segja. Núna eru náttúrulega í öllum blöðum stjörnuspár fyrir árið 2008 og það er ekkert smá fyndið að lesa þær. Því að þó að ég hafi ekki sett mér neitt ákveðið áramótaheit nema það að fara snemma að sofa sem gengur "svo" vel að LOKSINS í gærkvöldi var ég sofnuð fyrir 12, ég var bara stirð þegar ég vaknaði í morgun!!!
En jæja aftur að stjörnuspánum og áramótaheitinu en já ég sem sagt setti mér þetta eina áramótaheit en hef verið að hugsa þó nokkur atriði sem mig langar að bæta á árinu og helginni eyddi ég í að skipuleggja hvað ég ætla nú að fara að vera dugleg. Og það er BARA fyndið hvað allar þær stjörnuspár sem ég hef lesið passa vel við þetta!!! Ég ætla að byrja á að segja ykkur spána mína sem var í vikunni:
Krabbinn:
Jan: Þú gerir uppreisn gegn ríkjandi ástandi. Feb: Einhver vill deila með þér áætlunum sínum. Mars: Sönn ást í nánd. Apríl: Leyfðu fólki að hafa fyrir þér að þessu sinni. Maí: Ábatasamt viðskiptasamband. Júní: Nýttu ímyndunaraflið þér til hagsbóta. Júlí: Þú afrekar eitthvað nýtt. Ágúst: Takmark þitt hefur æskilega verkun. Sept: Þrár þínar samræmast ábyrgð þinni. Okt: Þú verður sjálfsörugg/ur og ómótstæðileg/ur. Nóv: Venus færir þér ljóma glæsileika. Des: Starfið veitir þér mikla gleði.
Hehe mér finnst svo margt af þessu passa svo vel, líka tímasetningarnar.... Sjáum til hvað gerist.
Í séð og heyrt stendur að ég verði mjög upptekin á árinu vegna eigin erinda, akkúrat það verður svo brjálað að gera hjá mér í að breyta til í lífinu...
Ég mun bæta samskipti á árinu við ættingja, líka það sem ég hafði í huga að fara að drífa mig í heimsóknir sem ég geri bara fáránlega lítið af. Þetta ár verður gott hjá þeim sem starfa í heilbrigðisgeiranum, ekki verra!!
Og fleira sem passar ótrúlega flott.
Ég elska samt spána í Nýju lífi. Þar stendur t.d. Plánetan Mars eyðir miklum tíma í Krabbamerkinu þeta árið, sem skapar þér óvenjugóðar aðstæður. Þú ert að springa úr orku, ákveðni, og athafnasemi og sérð að núna eru allar aðstæður til að gera gagngerar breytingar á lífinu... Einmitt það sem ég stefndi að!!
Svo er það það besta: Í ár skaltu huga að mataræðinu og líkamsrækt. Plútó plánetan sem hjálpar okkur að losna við slæma ávana er í kortunum þínum í ár en hverfur þaðan í nóvember og birtist ekki aftur á þessum stað í marga áratugi svo núna er tími breytinga. Já takk fyrir í marga ÁRATUGI!!! Þannig að ef þetta gerist ekki núna þá er þetta bara búið....
Ein mesta breytingin sem verður á árinu 2008 er bættur fjárhagur. Ummm like it!! Svo stendur biddu um launahækkun í kringum 1. ágúst, ok það verður sem sagt þá sem peningarnir fara að streyma!!!
Og að lokum stendur ef þú giftist árið 2008 hefur þú valið besta árið til þess sem gefist hefur í áratug. Já takk fyrir þannig að í lok ársins verð ég orðin algjör skvísa, þvílíkt mjó, ógó rík og gift.
Já 2008 er greinilega THE ÁRIÐ í mínu lífi!!!! ![]()
Hehe gaman að þessu, vonandi að það sé eitthvað að marka þetta. Mér fannst bara svo fyndið hvað þetta passaði allt við plönin mín og markmið fyrir árið... Þetta hlýtur bara að verða gott ár!!
Sandy súperskvís
Fyrsta blogg ársins
Áramótin voru líka alveg ágæt, ósköp róleg þetta árið, bæði var afar fámennt en auðvitað góðmennt hjá okkur þetta árið og svo var ég líka að vinna. Það var samt allt í lagi þannig ég fékk að fara heim kl. 8 enda ekkert að gera. En svo þurfti ég að mæta aftur í vinnu kl. 8 á nýársdag þannig að það gerði þetta allt saman ennþá rólegra. Reyndar hef ég engan áhuga lengur á að djamma um áramótin finnst ég alveg geta gert það á öðrum tímum og svo hef ég nú líka alveg verið full dugleg við djammið undanfarna tvo mánuði svona miðað við mig að minnsta kosti...
Ég reyndi að setja mér eitt áramótaheit, annars er ég ekkert góð í því að halda svona áramótaheit en jæja þetta árið var það allavega að reyna að lifa svona aðeins heilbrigðara lífi, kannski svona mest af öllu að fara þá snemma að sofa.
Þannig að ég ætla að fara að sofa núna, blogga aftur "fljótlega"!!!!
kiss kiss
Sandy
Jólin jólin...
![]()